Vikulegar sjósendingar frá Þýskalandi. Frakt opnar safnstöð í Hamborg.

Vikulegar sjósendingar frá Þýskalandi. Frakt opnar safnstöð í Hamborg.

Frakt hefur í samstarfi við traustan erlendan samstarfsaðila NVO í Þýskalandi opnað safnstöð í Hamborg. Höfum þegar átt mjög gott samstarf við NVO sem sjá um okkar safnstöð í Immingham.

untitled

Vöruhús NVO er við bæjardyrnar í Hamborg.  Það þýðir að kostnaður við að koma safngámum til hafnar er mjög lítill.  Við getum því boðið viðskiptavinum okkar mjög hagstæðan flutningskostnað frá Þýskalandi með vikulegum siglingum á Þriðjudögum.  Þar að auki hefur Frakt vikulegar siglingar frá helstu höfnum í Evrópu, þar með talið Rotterdam, Immingham og Hirtshals í Danmörku.