21 sep Vikulegar sjósendingar frá Þýskalandi. Frakt opnar safnstöð í Hamborg.
Frakt hefur í samstarfi við traustan erlendan samstarfsaðila NVO í Þýskalandi opnað safnstöð í Hamborg. Höfum þegar átt mjög gott samstarf við NVO sem sjá um okkar safnstöð í Immingham.
Vöruhús NVO er við bæjardyrnar í Hamborg. Það þýðir að kostnaður við að koma safngámum til hafnar er mjög lítill. Við getum því boðið viðskiptavinum okkar mjög hagstæðan flutningskostnað frá Þýskalandi með vikulegum siglingum á Þriðjudögum. Þar að auki hefur Frakt vikulegar siglingar frá helstu höfnum í Evrópu, þar með talið Rotterdam, Immingham og Hirtshals í Danmörku.